Metnaðarfullt skólastarf í Mosfellsbæ

Við Mosfellingar getum verið stoltir af því frábæra skólastarfi sem fram fer í Mosfellsbæ á öllum skólastigum.  Á síðustu árum hefur skólastarfið verið í stöðugri þróun og sókn og er það  fyrst  fremst að þakka því góða starfsfólki sem starfar í skólum bæjarins.  Grunnskólar Mosfellsbæjar hafa komið vel út í samræmdum prófum sem er jú einn mælikvarði á gæði. En mælikvarðarnir eru fleiri og nefna má að skólarnir okkar hafa hlotið styrki úr þróunarsjóði grunnskólanna fyrir framúrskarandi verkefni af ýmsum toga.  Við sjálfstæðismenn höfum skýra stefnu í að styðja við metnað og faglegt starf innan skólanna.  Við höfum lagt áherslu á samþættingu skóladags yngstu barnanna með samblandi af tómstundastarfi og fræðslustarfi.  Einnig höfum við lagt áherslu á valfrelsi í skólamálum þar sem hver skóli fær tækifæri til að þróa sína sérstöðu og foreldrar hafa svo val um hvaða skóli hentar þeirra barni best. 

Menningarvika leikskólanna

Nýafstaðin er menningarvika leiksskólanna.  Glæsileg listasýning var í Kjarna þar sem börnin komu í hópum að syngja fyrir foreldra og gesti.  Börnin fyllast stolti við að sýna starf sitt og fyrir foreldrana er þetta ómetanlegt.  Menningarvika leikskólanna er frábært verkefni og eiga leikskólastarfsmenn og börnin hrós skilið fyrir vinnu sína við að gera þessa sýningu að veruleika. 

Foreldravika í Lágafellsskóla

Foreldraviku er nýlokið í Lágafellskóla en þetta er í annað sinn sem hún er haldin.  Verkefnið er samstarf foreldrafélagsins og skólans.  Í vikunni er foreldrum boðið að koma og fylgjast með kennslustundum og taka þátt í daglegu starfi.  Foreldrum gefst einstakt tækifæri til að upplifa hvernig skóladagurinn gengur fyrir sig og hvernig kennslu barnanna er háttað.  Frábært verkefni sem við vonum að sé komið til að vera. 

Sjálfbær þróun í Varmárskóla

Varmárskóli hefur á undanförnum árum lagt sérstaka áherslu á umhverfi og menntun til sjálfbærrar þróunar í starfi skólans.  Skólinn hefur verið leiðandi í Mosfellsbæ í þessu verkefni og aðrar stofnanir hafa leitað til skólans, auk þess margir gestir hafa heimsótt skólann á undanförnum misserum til að læra af skólafólkinu okkar þar. Þá hefur skólinn  unnið að þróunarverkefni um útinám og mótun útikennslusvæðis við Varmárskóla og stigið fyrstu skref í að færa líf í ævintýragarð Mosfellsbæjar með staðsetningu útikennslusvæðisins þar.

Heilsdagsskóli – skóli framtíðarinnar

Nútíma samfélag gerir kröfu um heilsdagsskóla fyrir yngstu börnin. Í Mosfellsbæ hefur þjónusta frístundaseljanna þróast mikið á síðustu árum.  Íþróttafjör Aftureldingar er nýjasta viðbótin þar sem börnin fara tvisvar í viku í íþróttahúsið og kynnast hinum ýmsu íþróttagreinum.  Í Krikaskóla er gengið enn lengra með þessa samþættingu og aðlögun að nútíma samfélagi en þar er skólaár barnanna 200 dagar í stað 180 daga í hefðbundnum grunnskólum.  Þar er skólinn opinn frá 7:30 til 17 og er skólastarf, tómstundastarf, rólegar stundir og val fléttað saman með metnaðarfullum og spennandi hætti.

Það er óhætt að segja að skólastarf í Mosfellsbæ hefur verið leiðandi á landsvísu og við viljum að svo verði áfram.  Þrátt fyrir núverandi erfiðleika í efnahagslífinu og þar af leiðandi minni fjármuni til ráðstöfunar stöndum við vörð um faglegt starf innan skólanna okkar og viljum að hér eftir sem hingað til muni skólar í Mosfellsbæ blómstra.

Greinin birtist í Mosfellingi apríl 2010 

Bryndís Haraldsdóttir, 3 sæti á lista sjálfstæðismanna

Hafsteinn Pálsson, 4. sæti á lista sjálfstæðismanna


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Um bloggið

Bryndís Haraldsdóttir

Höfundur

Bryndís Haraldsdóttir
Bryndís Haraldsdóttir
Bryndís er 32 ára áhugamanneskja um pólitík
Apríl 2024
S M Þ M F F L
  1 2 3 4 5 6
7 8 9 10 11 12 13
14 15 16 17 18 19 20
21 22 23 24 25 26 27
28 29 30        

Nýjustu myndir

  • ...vor_i_moso
  • Lágafellskirkja
  • ...smbl_953444
  • ...smbl_953443
  • ..._haraldsmbl

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (19.4.): 1
  • Sl. sólarhring: 1
  • Sl. viku: 29
  • Frá upphafi: 672

Annað

  • Innlit í dag: 1
  • Innlit sl. viku: 29
  • Gestir í dag: 1
  • IP-tölur í dag: 1

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband