Færsluflokkur: Bloggar

Prófkjörið í SV fer fram á morgun laugardag

Á morgun laugardag velja Sjálfstæðismenn í SV kjördæmi lista sinn fyrir komandi kosningar. 

Tólf frambærilegir frambjóðendur hafa gefið kost á sér og er ég einn þeirra.

Ég vonast eftir stuðningi í 4.-5. sæti á listanum.

Ég hvet alla Sjálfstæðismenn í kjördæminu að mæta á kjörstað og velja öflugan og fjölbreyttan lista.  Fólk af báðum kynjum á öllum aldri og fólk með mismunandi bakgrunn og reynslu.

kær kveðja

Bryndís Haraldsdóttir

www.bryndisharalds.is

 


Ástandið er ekki gott þó það sé kanski ekki jafn slæmt og látið hefur verið að.

Mikilvægt að loksins liggi upplýsingar fyrir um stærð vandans.  Ég óttaðist sjálf að hlutfall þeirra sem væru með húsnæðislán sín í erlendri mynt væri mun stærra.

Sem betur fer geta flest heimili en sem komið er staðið í skilum og mjög brýnt er að tryggja að þau geri það áfram.  Til þess þarf fólk að hafa tiltrúa á íslenskum atvinnumarkaði.  Tiltrúa á því að hér verði í framtíðinni gott að búa.

Til þess verðum við að tryggja að atvinnuleysi aukist ekki en frekar og að það atvinnuleysi sem við búum því miður við núna sé skammtíma vandi en ekki langtímavandamál.

 Við verðum jafnframt að finna leið til að hjálpa þeim sem illa standa en þær aðgerðir verða að vera gegnsæjar og sanngjarnar.


mbl.is Fjölmargir standa vel
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Talsmaður nýsköpunar og fjölbreytileika í atvinnulífinu

Við Íslendingar höfum í gegnum tíðina tekist á við efnahagslegar sveiflur í takt við breytingar hjá stærstu atvinnugrein okkar, sjávarútvegnum.  Nú er íslenskt efnahagslíf í rúst eftir fall fjármálageirans.   Ég hef ákveðið að gefa kost á mér í prófkjöri Sjálfstæðismanna í SV kjördæmi sem fram fer 14. mars.  Ég býð mig fram vegna þess að ég trúi því að margra ára reynsla mín á sviði ráðgjafar í nýsköpun, tækniyfirfærslu og atvinnuuppbyggingu sé reynsla sem þarf inn á Alþingi Íslendinga. Það er frábært að verða vitni af þeirri gerjun sem nú á sér stað í samfélaginu.  Þá gerjun þurfum við að nýta til að móta sameiginleg gildi og framtíðarsýn fyrir íslenskt samfélag og atvinnulíf.  Fjölbreytileiki tryggir jafnvægi Brýnt er að stuðla að öflugri uppbyggingu á sviði nýsköpunar- og frumkvöðlastarfsemi og auka við fjölbreytileika íslensks atvinnulífs.  Aukin fjölbreytileiki tryggir jafnvægi og treystir undirstöður í atvinnulífinu til framtíðar. Við megum ekki til lengri tíma litið haft öll eggin okkar í einu og sömu körfunni.   Um leið og við nýtum náttúruauðlindir okkar með skynsamlegum hætti eigum við jafnframt að huga að mikilvægustu auðlind okkar, mannauðnum.  Íslenska þjóðin er seig og hugmyndarík og okkur verður að auðnast að virkja þann kraft sem í henni býr til að endurreisa íslenskt atvinnulíf. Við verðum að tryggja að atvinnuleysi aukist ekki enn frekar og að það atvinnuleysi sem við búum því miður við núna verði skammtímavandi en ekki langtímavandamál. Hristum af okkur hefðbundin vinnubrögð þar sem hver hlutur á heima í tilteknum kassa. Byggjum upp samkennd og virkjum mannauðinn.   Bryndís HaraldsHöfundur gefur kost á sér í 4-5. sæti í prófkjöri Sjálfstæðismann í SV kjördæmi sem fram fer 14. mars næstkomandi.

Réttlæti, sanngirni og gegnsæi

Ég trúi því einlæglega að sú hugmyndafræði og starfsaðferðir sem við sjálfstæðismenn kennum okkur við í framtíðinni verði að einkennast af réttlæti, sanngirni og gegnsæi.
Fyrir þessum gildum vil ég standa.

Reynslan hefur því miður leitt í ljós að á undanförnum árum hefur þessum gildum víða verið vikið til hliðar.

Sjálfstæðisflokkurinn þarf að taka pólitíska ábyrgð á þeim hamförum sem nú ganga yfir efnahag landsins. Það er óhjákvæmilegt að líta yfir farinn veg og skoða hvers vegna hlutirnir náðu að fara  úrskeiðis með jafn afdrifaríkum hætti og raun bar vitni.

Alþingi þarf jafnframt að endurskoða stöðu sína sem hornsteinn lýðræðis í landinu. Ljóst er að þar hafa átt sér stað óvönduð vinnubrögð sem þarf að lagfæra. Einnig þarf að endurskoða samspil löggjafarvaldsins og framkvæmdavaldsins.

Til framtíðar er mikilvægt að við leggjumst öll á eitt við að tryggja að hér dafni traust og gott samfélag.  Samfélag sem hlúir að einstaklingum og fjölskyldum.  Samfélag þar sem þar sem heiðarleiki, samkennd og réttlæti ríkir.


Fyrstu bjartsýnu fréttirnar af fjármálamarkaði eftir hrunið

Þá kom að því loksins jákvæðar fréttir úr fjármálageiranum.  Það skyldi þó ekki vera að botninum væri náð og nú stefnum við bara upp á við.
mbl.is Besti kauphallardagur ársins
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Ísland á tímamótum

Við Íslendingar stöndum nú á tímamótum.  Á síðustu árum höfum við upplifað mesta góðæri Íslandssögunar.  Nú er partýið búið og timburmennirnir hafa tekið við.  Það er ljóst að margt fór úrskeiðis og Sjálfstæðisflokkurinn hlýtur að bera ábyrgð.  Mistök voru gerð, það er alveg ljóst annars hefði ekki farið sem fór.  Það er nauðsynlegt að við lærum af þeim mistökum.

Skrifum framtíðina

Vitur maður sagði eitt sinn “Ég kvíði ekki framtíðinni, því ég ætla að skrifa hana”
Lykilatriði er að opna augu allra sem að málum koma fyrir því að framtíðin býr yfir margvíslegum tækifærum.
Mikilvægast auðlind okkar er sú þekking og kraftur sem býr í okkur Íslendingum.  Grundvallaratriði er að tryggja að þessi þekking og kraftur glatist ekki.

Ég býð mig fram

Ég hef ákveðið að gefa kost á mér í þá vinnu sem fram undan er í íslenskum stjórnmálum. Ég er viðskiptafræðingur og fjölskyldukona sem trúi á réttsýni sanngirni og heiðarleika.  Ég hef áralanga reynslu af ráðgjöf á sviði nýsköpunar og atvinnuuppbygginar og ég trúi því að minn bakgrunnur og mín gildi komi að góðum notum í því mikilvæga starfi sem fram undan er.
Ég trúi því að víðsýn umbótastefna á grundvelli einstaklingsfrelsis og atvinnufrelsis með hagsmuni allra stétta fyrir augum sé leiðin útúr þeim vanda sem við nú stöndum frammi fyrir. 
Ég vil að endurbætt Ísland sé sanngjarnara og fjölskylduvænna en það samfélag sem við höfum lifað í á síðustu misserum og fyrir því mun ég beita mér.

Ég býð mig fram í prófkjöri sjálfstæðismanna sem fram fer 14. mars næstkomandi og óska eftir stuðningi þínum.

Bryndís Haralds.
Frekari upplýsingar um mig og framboð mitt má finna á www.bryndisharalds.is


Vaxtalækkun

Löngu tímabært að lækka hér vexti.  Seðlabankar allstaðar í kringum okkur hafa lækkað vexti hratt á síðastliðnum mánuðum.  Fyrirtækin í landinu og heimilin þurfa á vaxtalækkun að halda strax.
mbl.is Býst við vaxtalækkun í næstu viku
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Meira svona til að draga úr ríkisútgjöldum

Löngu tímabært að afnema fríðindi af þessu tagi. 

En nú er komin tími til að nýja ríkisstjórnin standi við stóru orðin og bjargi heimilunum í landinu.

Það verður aðeins gert með hröðum og markvissum að gerðum sem lúta að því að koma hjólum atvinnulífsins aftur af stað.  Lækka þarf vexti og endurbyggja bankana svo þeir geti þjónað þörfum atvinnulífsins.

Atvinnuleysi er alvarlegt samfélagsmein sem við getum ekki sætt okkur við.


mbl.is Steingrímur sker í dagpeninga
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Ofbeldi í skólum

 

Það ofbeldi sem við höfum á síðustu vikum fengið fréttir af í skólum landsins er algjörlega óásættanlegt.  Börnin okkar eiga rétt á því að finna til öryggis í skólanum sínum.  Þar eiga þau ekki að verða fyrir ofbeldi af neinu tagi.

Ég hvet skólayfirvöld til að taka af festu á þessu málum í samvinnu við foreldra og samtök þeirra.  Vandamál sem þessi og forvanir gegn ofbeldi af öllu tagi verður að vinna á vettvangi skólasamfélagsins.  Þar spila foreldrar stórt hlutverk.

Segja má að foreldrar sem auðlind í skólastarfi, sé auðlind sem sé vannýtt hér á landi.  Allar rannsóknir sýna að árangur barna er mun meiri ef samstarf foreldra og skóla er mikið og gott. 

Í því erfiða árferði sem við nú lifum í er mikilvægara en nokkru sinni fyrr að skólinn sé vettvangur jákvæðs starfs, vinnustaður þar sem ríkir sátt og samlyndi.  Vinnustaður þar sem börnunum okkar líður vel. 

En nú hafa skólarnir tækifæri til að virkja foreldra betur inn í starfið.  Margir foreldrar hafa misst vinnuna og flest okkar hafa meiri tíma aflögu.  Skólarnir ættu að nýta sér þá þekkingu og umhyggju sem foreldrar hafa yfir að búa.

Höfundur er varaformaður Heimilis og skóla Landssamtök foreldra


Svarið fellst í nýsköpun

Flottur fundur hjá Nýsköpunarmiðstöð mikið af góðum fréttum um ný fyrirtæki sem sprottið hafa upp í þessu erfiða árferði.

Reyndar er svo að síðustu misseri hafa reynst nýsköpunarfyrirtækjum erfið, allt fjármagn og starfsfólk hefur leitað þangað sem peningarnir voru þ.e. í bankanna. 

Nú er tækifærið, nú er komið að nýsköpunarbyltingunni í kjölfar fjármálabyltingarinnar.  Eða eins og einn frummælanda á fundinum sagði nú er komið að nýsköpunargosinu í Vestmaneyjum, við skulum vona að það teygi anga sína upp á meginlandið.

Öflugt nýsköpunar og frumkvöðlastarf er það sem mun leiða okkur út úr þeim vanda sem við nú stöndum frammi fyrir.  Mikilvægt er að nýsköpun eigi sér stað bæði hjá nýjum sprotum en ekki síður hjá eldri fyrirtækjum í öllum atvinnugreinum. Við getum ekki til framtíðar treyst á fáar en stórar atvinnugreinar, við verðum að byggja á meiri fjölbreytileika en við höfum áður gert.

Mikilvægasta auðlind Íslands erum við, fólkið sem byggir landið.  Við höfum öll hlutverki að gegna við endurreisn íslensks atvinnulífs.  Hvert handtak hver hugmynd skiptir máli.


mbl.is Rætt um „íslensku leiðina“ á ársfundi Nýsköpunarmiðstöðvar
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Fyrri síða | Næsta síða »

Um bloggið

Bryndís Haraldsdóttir

Höfundur

Bryndís Haraldsdóttir
Bryndís Haraldsdóttir
Bryndís er 32 ára áhugamanneskja um pólitík
Nóv. 2024
S M Þ M F F L
          1 2
3 4 5 6 7 8 9
10 11 12 13 14 15 16
17 18 19 20 21 22 23
24 25 26 27 28 29 30

Nýjustu myndir

  • ...vor_i_moso
  • Lágafellskirkja
  • ...smbl_953444
  • ...smbl_953443
  • ..._haraldsmbl

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (22.11.): 1
  • Sl. sólarhring: 1
  • Sl. viku: 10
  • Frá upphafi: 872

Annað

  • Innlit í dag: 1
  • Innlit sl. viku: 3
  • Gestir í dag: 1
  • IP-tölur í dag: 1

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband